Gunnsteinn Björnsson verðandi Evrópuforseti og eiginkona hans Sigríður Káradóttir ásamt Birni B. Kristinssyni umdæmisstjóra og Berglindi Stefánsdóttur konu hans eru stödd á heimsþingi í Denver Colorado þar sem aðstæður eru eins og best verður á kosið og hótelið aðeins í fimm mínútna göngufjarlægð frá ráðstefnuhöllinni.
Í ráðstefnuhöllinni eru tvö þing í gangi, Kiwanisþing og svo Fanexpo ( Comicon ) og hafa furðuverur verið allt umliggjandi ráðstefnuhöllina, sem gefur öllu saman skemmtilegan blæ.
Þegar þetta er ritað eru kosningar ný afstaðnar og
27. maí 2024
Ágætu forsetar og kiwanisfélagar
Með bréfi þessu boðar umdæmisstjórn 2023-2024 formlega til umdæmisþings sem haldið verður í Tórshavn, Færeyjum 13.-15. september 2024.
Undirbúningur þingsins er vel á veg kominn og er í höndum þingnefndar. Formaður nefndarinnar er Petur Olivar í Hoyvík, kiwanisklúbbnum Eysturoy.
Kjörbréf hafa nú
Hér kemur dagskrá umdæmisþings í Færeyjum 13 til 15 september 2024
KLIKKIÐ Á MYNDINA HÉR AÐ NEÐAN
Nýliðið Evrópuþing er minnisstætt fyrir þá Íslendinga sem voru viðstaddir þar sem ný stjórn Kiwanis International Europe var samþykkt.
Gunnsteinn Björnsson var kjörinn Evrópuforseti, Elio Garozzo frá Ítalíu og San Marino umdæminu verðandi forseti, Karl Lippitz frá Austurríki þar á eftir í röð forseta, Ralf Otto Gogolinski frá Þýskalandi verður áfram féhirðir, Josy Glatigny fráfarandi forseti og Konráð Konráðsson verður ritari.
Eiður Ævarsson verður nýr starfsmaður skrifstofu Kiwanis í Evrópu sem Kynningar og markaðsfulltrúi.
Kiwanisklúbburinn Helgafell í
Kæru Kiwanisfélagar. Eins og áður hefur verið greint frá verður ekki fræðsla á þinginu Í Færeyjum svo ákveðið hefur verið að hafa fræðslu fyrir forseta og féhirða mánudaginn 3. júní kl. 20 á Bíldshöfðanum og fyrir ritara miðvikudaginn 5. júní kl. 20 einnig á Bíldshöfðanum. Þá mun fræðsla forseta, féhirða og ritara fara fram á Akureyri í Kiwanishúsinu þar þann 8. júní n.k. Fundarboð verða
Síðasta vetrardag hélt Kiwanisklúbburinn Búrfell í samstarfi við Hvítahúsið á Selfossi veglega Hrossaveislu þar sem boðið var uppá alvöru hrossabjúgu ásamt söltuðu hrossakjöti og öllu tilheyrandi meðlæti. Húsið opnaði kl 19:00 og mættu yfir 150 manns til að láta gott af sér leiða en allur ágóði kvöldsins rennur til Krabbameinsfélags Árnessýslu. Diðrik Haraldsson setti hátíðina og bauð alla velkomna og sagði nokkur orð og m.a sagði hann að þeir Búrfellsfélagar væru tilbúinir að taka við nýjum félögum ef einhverjir í hópnum hefðu
Fræðsla verðandi embættismanna í Færeyjum fór fram þann 6. apríl síðastliðinn í Kiwanishúsinu í Tórshavn. Tókst vel til en fræðslan fór fram á dönsku. Í framhaldinu var svæðisráðstefna Færeyjasvæðis sem Björn umdæmisstjóri, Guðlaugur kjörumdæmisstjóri og undirrituð sátu. Ég dvaldi í Tóra guesthouse þessa helgi í boði Sámal Bláhamar og Tórharda Bláhamar þar sem dekrað var við mann á alla kanta. Eiga þau miklar þakkir skildar fyrir gestrisnina. Þrátt fyrir
Kæru Kiwanisfélagar Í tilefni 30 ára afmælis boðar Kiwanisklúbburinn Sólborg til afmælisfundar
4. maí nk. kl. 16.00-18.00 og er fundurinn haldinn að Helluhrauni 22, Hafnarfirði. Þann 5. maí nk. eru 30 ár síðan Kiwanisklúbburinn Sólborg var formlega stofnaður
og fagnar klúbburinn því 30 ára afmæli í vor.
Að loknum fordrykk verða léttar veitingar bornar fram og
Apríl er mikilvægur mánuður í Kiwanisstarfinu, vorið er á næsta leyti og það glittir í sumarfrí en fyrst þurfum við að halda einbeitingu og fara inn í fríið vitandi að við höfum klárað verkefnin sem hvíla á okkur. Verkefni eins og hjálmaafhendingar, aðalfundir og jafnvel undirbúningur fyrir K dag í haust með því að hafa samband við mögulega söluaðila og hafa þá klára fyrir haustið, ég vil hvetja klúbba til að huga að þessu tímanlega. Það má segja að Hjálmadagurinn sé vorboði Kiwanisfélaga en um 4.400 hjálmar verða afhentir börnum í fyrsta bekk þetta starfsár og óska ég félögum góðs gengis og góðrar skemmtunar við dreifingu hjálmana. Það sem af er ári hafa 9 klúbbar náð að bæta við sig félögum og vil ég óska þeim innilega til hamingju með nýju félagana og
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi 50 ára
Á haustdögum 1973 komu nokkrir menn saman að tilstuðlan Stefáns Benediktssonar Húsavík og Hilmars Daníelssonar frá Kiwanisklúbbnum Hrólfi Dalvík til að kann þann möguleika á að stofna Kiwnaiklúbb á Húsavík. Eftir kynningu á því hvað Kiwanis er, var ákveðið að reyna þetta og afla fleiri félaga sem gekk nokkuð vel. Þegar búið var að ná til 14 félaga var boðað til fyrsta formlegs undirbúnings fundar að stofnun Kiwanisklúbbs sem haldinn var í Félagsheimili Húsavíkur þann 5. nóv. 1973. Dagskrá fundarins var eftirfarandi.
1. Nafn á klúbbinn.
2. Fundardagar – tími og staður.
3. Árgjald.
4. Stjórnarkosning og önnur mál.
Stefán Ben stjórnaði þessum fundi og Þórður Ásgeirsson ritaði fundargerð.
Margar hugmyndir komu fram um nafn á klúbbinn og voru þær
Skjálfandafélagar verða með opið hús í Kiwanishúsinu að Garðarsbraut 27 sunnudaginn 24 mars n.k. Kl.15:00 Þar verður boðið uppá kaffi og léttar veitingar í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins, settur verður hátíðar afmælisfundur þar sem
Kristjón Elvar Elvarsson forseti hjá Ós setti fund og ræddi hvernig Ós kemur að þessum fundi. Fól svo Stefán Brandi fundarstjórn en Guðmundur Björgvinsson formaður Einstakra barna var næstur og fór yfir starf samtakanna stofnun þeirra og stöðu í dag og hvað landsöfnun Kiwanis munu gera fyrir samtökin. Ekki laust að sumir fundargesta hafi klökknað þegar hann sagði frá, þar á meðal persónulegri reynslu.
Eiður Ævarsson formaður Markaðs og kynningarnefndar fór yfir
Kiwanisklúbburinn Hekla hefur verið að halda upp á afmæli sitt um þessar mundir. Klúbburinn var stofnaður 14 janúar 1964 og á afmælisdaginn, sunnudaginn 14. Janúar síðastliðinn hélt Forseti Íslands móttöku fyrir Heklufélaga og umdæmisstjórnarmenn að Bessastöðum. Var það hátíðleg og notalega stund, þó svo að nýhafið eldgos í útjaðri Grindavíkur setti óneitanlega svip sinn á samkomuna.
Hátíðahöldum var svo framhaldið 1. mars síðastliðinn, þegar
Kæru félagar í Kiwanisklúbbnum Heklu
Mig langar að senda ykkur mínar bestu afmæliskveðjur í tilefni 60 ára afmælis klúbbs ykkar. Þetta er tími til að hugsa til baka um þau tækifæri sem þið hafið skapað fyrir börnin og samfélag ykkar. Langlífi klúbbs ykkar er merki um þjónustu ykkar við Kiwanis hugsjónina og þjónustulund ykkar sem kemu fram í skipulagningu og framkvæmd þeirrar hugsjónar. Kiwanis snýst um félaga sína og vinskap þeirra við að vinna saman að þjónustverkefnum. Félagar í Kiwanis eru
Það var prúðbúinn hópur frá Kiwanisklúbbnum Heklu og fulltrúum umdæmisstjórnar ásamt mökum sem komu saman á Bessastöðum í gær 14. Janúar 2024 til að fagna 60 ára afmælis Kiwanis á Íslandi.
Forseti Íslands Guðni Th Jóhannesson tók á móti okkur og fór fögrum orðum um Kiwanis og það starf sem hefur verið unnið í gegn um tíðina og því loknu tók Björn umdæmisstjóri til
Það var líf og fjör á verkstæði jólasveinsins í Kiwanishúsinu í Vestmannaeyjum þegar pökkun hófst á jólasælgæti klúbbsins, en þar koma margar hendur að, stórar sem smáar. Félagar mæta með börn og barnabörn, vini og kunningja og taka til hendinni við pökkun á sælgæti í jólaöskjur sem síðan eru seldar til bæjarbúa til fjáröflunar fyrir góð verkefni í þágu samfélagsins hér í Eyjum. Jólasælgætið er aðalfjáröflun klúbbsins og með góðum stuðningi bæjarbúa og
Í dag komum við saman á HSU í Vestmannaeyjum fulltrúar frá
Kiwanisklúbburinn Helgafelli, Kvenfélaginu Líkn, og Oddfellow Rbst. nr. 3 Vilborg og Oddfellow St. nr. 4, Herjólfur. Tilefnið var að afhenda Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum guluteppi en slíkt teppi kostar 1.066.400 kr og er mjög mikilvægt til meðferðar á gulu hjá nýfæddum börnum, í stað þess að ungbarnið fari ekki í svokallaðann gulukassa. Foreldrar geta þess í stað haldið á barninu umvafið teppinu, en slík
Látinn er góður vinur og samstarfsfélagi innan Kiwanishreyfingarinna til margra ára, en Svavar varð bráðkvaddur langt um aldur fram, að Skálm í Álftaveri en þar líkaði honum lífið vel og dvaldi þar við öll tækifæri við veiðar og uppbyggingu á húsi sínu og nærumhverfi, en Svavar var mikill útivistarmaður og afrekaði það m.a að hjóla umhverfis landið ásamt því að fara á fjöll og stunda allskyns veiðar. Svavar var viðskiptafræðingur að mennt og vann störf tengd þeirri mentun en seinni ár tók hann að sér smíðakennslu í Hraunvallarskóla í Hafnarfirði og ekki leiddist honum að vera innan um börnin og fólk almennt enda mikill öðlingur og félagsvera.
Svavar var mikill Kiwanismaður og var
Forseti Kiwanis í Tórshavn, Karlot Hergeirsson, afhenti umboðsmanni fyrir Javna peningagjöfina upp á 50.000 kr á samkomu í Kiwanishúsinu miðvikukvöldið 11. október.
Fía Petersen, formaður (forkona) í Javna þakkaði innilega fyrir þessa stóru gjöf og sagði nokkur orð um verkefni Javna.
Javni er félag fyrir þau, sem eru þroskaskert og aðstandendur þeirra og er aðal verkefni félagsins að vinna að betri aðstæðum fyrir þau.
Gjöfin frá Kiwanis er ekki eyrnamerkt ákveðnu verkefni, en verður notuð fyrir börn og ungt fólk og er þetta í anda Kiwanis. Til dæmis finnum við hjá Javna að það er