27. maí 2024
Ágætu forsetar og kiwanisfélagar
Með bréfi þessu boðar umdæmisstjórn 2023-2024 formlega til umdæmisþings sem haldið verður í Tórshavn, Færeyjum 13.-15. september 2024.
Undirbúningur þingsins er vel á veg kominn og er í höndum þingnefndar. Formaður nefndarinnar er Petur Olivar í Hoyvík, kiwanisklúbbnum Eysturoy.
Kjörbréf hafa nú
þegar verið send klúbbum.
Varðandi frekari upplýsingar um þingið er bent á heimasíðu umdæmisins, þingnefnd og Gunnar, Travel North.
Björn Bergmann Kristinsson
Umdæmisstjóri 2023-2024