Kiwanis og Eimskip gefa reiðhjólahjálma.

Kiwanis og Eimskip gefa reiðhjólahjálma.

  • 15.05.2009

Eimskip og Kiwanis gefa öllum 7 ára börnum reiðhjólahjálma
- tæplega 10% þjóðarinnar hafa fengið hjálma  síðustu sex ár Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskip gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma.  Um er að ræða árlegt  átak  Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að   auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins.  Alls verða 4200  reiðhjólahjálmar gefnir í ár og munu Kiwanisklúbbar og Eimskip vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna.

Fyrir fimm árum tók öll Kiwanishreyfingin og Eimskip höndum  saman að fyrirmynd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks  á Akureyri  á landsvísu. Frá upphafi verkefnisins hafa hátt í  30 þúsund hjálmar verið gefnir börnum 7-12 ára sem er tæplega 10% þjóðarinnar.

Eimskip leggur ríka  áherslu á öryggismál í allri sinni starfsemi og vill með þessum hætti leitast við að miðla þeirri reynslu  til barnanna.. Börn þurfa  að  vita  mikilvægi öryggis í umferðinni. 

Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard forstöðumanns Forvarnahússins.  "Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir" segir Herdís.

Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Hjálmur sem farið er vel með á að endast í 5 ár.

Nemendur í 1. bekk í Norðlingaskóla komu saman í höfuðstöðvum Eimskips að Sundakletti í Reykjavík í dag og   voru þau  fyrstu börnin til að fá afhenta reiðhjólahjálma í ár. Silfurverðlaunahafarnir í handknattleik frá Ólympíuleikunum þeir, Sigfús Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson  afhentu fyrstu hjálmana ásamt fulltrúum frá Eimskip og Kiwanis.  "Það er skemmtilegt og hollt að hjóla.  Allir verða að vera með hjálma, líka fullorðnir.  Það er áríðandi að vera með hjálm" sögðu landsliðsmennirnir við afhendinguna.

Athygli á alþjóðavettvangi
Þetta árið verða þúsundir íslenskra skólabarna öruggari í umferðinni með hjálma merkta Eimskip og Kiwanis. "Það er Kiwanishreyfingunni mjög mikilvægt að fyrirtæki í landinu sýni verkefni sem þessu áhuga og stuðning," sagði Matthías G. Pétursson umdæmisstjóri Kiwanis  "Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli víðsvegar um heim og eru dæmi þess að erlendir aðilar hafi tekið það upp, meðal annars í Bandaríkjunum."