Kiwanisklúbburinn Hekla hélt jólafund sinn á Grand Hótel á fimmtudaginn 14. desember sl.. Á fundinum var Reykjadalur, sumardvalastaður fyrir fötluð börn, afhentur styrkur frá Kiwanisklúbbunum Heklu og Esju að upphæð einmilljón króna. Að stofni til var styrkurinn afrakstur fjáröflunar á Lambaréttadeginum, sem lengi hefur verið árleg fjáröflunarsamkoma Heklu og nú síðari ár með þátttöku Esju. Það voru Sigurður R Pétursson, forseti Heklu og Sigurður Steinarsson forseti Esju sem afhentu styrkinn. Fyrir hönd Reykjadals var boðið Margréti Völu Marteinsdóttur forstöðukonu ásamt maka og veitti hún styrknum viðtöku og þakkaði síðan fyrir með stuttu ávarpi.
Hekla hefur lengi haft þann sið að
bjóða ekkjum látinna félaga til jólafundarins og var þeim sið framhaldið þetta árið og mættu 13 ekkjur til fundarins, auk annarra gesta sem voru makar félaga auk framangreinds fulltrúa frá Reykjadal, fulltrúa frá Kiwanisklúbbnum Esju og sr. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprests á Seltjarnarnesi og fleiri og voru samtals um 45 félagar og gestir á fundinum Á fundinum átti að heiðraðir Þorstein Sigurðsson fyrir 45 ár í Kiwanishreyfingunni og einnig að sæma hann rúbínstjörnu fyrir velunnin störf fyrir klúbbinn. Því miður komst Þorsteinn ekki á fundinn vegna veikinda, en forseti og formaður heiðursgjafanefndar Björn Pálsson heimsóttu Þorstein og afhendu honum merkið og rúbínstjörnuna og veittu einnig Erlu Þorsteinsdóttur eiginkonu hans barmnælu, sem er eftirlíking Holtasóleyjar, þjóðarblóm okkar.
Sigurður R. Pétursson
forseti Heklu.