Kiwnisklúbburinn Hof 50 ára

Kiwnisklúbburinn Hof 50 ára



50 ára afmæli Kiwanisklúbbsins Hofs var fagnað formlega á dögunum með kaffisamsæti í félagsheimili klúbbsins í Garði. Klúbburinn var stofnaður 26. júní árið 1972.
Við það tækifæri voru afhentar gjafir frá Hofi til Tónlistarskólans í Garði, Gerðaskóla og félagsstarfs ungmenna.
Fyrr á árinu voru afhentar gjafir til félagsstarfs í Auðarstofu og dagdvalar aldraðra á Garðvangi.
Nemendur við Tónlistarskólann í

 Garði sungu og spiluðu fyrir afmælisbarnið og því voru einnig færðar gjafir.
Margir góðir gestir heiðruðu Kiwanisklúbbinn Hof á þessum tímamótum og m.a. var Jóhanna Einarsdóttir umdæmisstjóri.
Hof er ekki fjölmennur klúbbur. Félagsmenn eru aðeins átta talsins en þeir funda tvisvar í mánuði og eru með öflugt starf, þrátt fyrir fáa félaga.