Húsfyllir var á árlegri sviðaveislu Kiwanisklúbbsins Bása á Ísafirði, semnvar haldin 30. október. Veislan er fastur liður í starfi klúbbsins og búin að vinna sér ákveðinn sess í bæjarlífinu. Félagar í klúbbnum sjá um öflun og verkun sviðanna og eiga að góða vini í hópi tómstundabænda á svæðinu. Fjáröflun klúbbsins til góðgerðarmála byggir að stóru leyti á sviðaveislunni og auk þess sjávarréttakvöldi að vori. Fyrirtæki á svæðinu hafa verið velviljuð klúbbnum og
eiga þau þakkir skilið fyrir góðan stuðning. Sérstakir gestir sviðaveislunnar voru umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland- Færeyrjar, Pétur Jökull Hákonarson og svæðisstjóri Freyjusvæðis, Ásvaldur Jónatansson. Þeir félagar sáu einnig um stjórnarskipti í Básum, en stjórn skipa nú Kristján Andri Guðjónsson forseti, kjörforseti Kristján Loftur Bjarnason, fráfarandi forseti Gunnlaugur Finnbogason, ritari Gunnlaugur Gunnlaugsson, féhirðir Ævar Einarsson.
Hlaðborðið á sviðaveislunni, ný, reykt og “slegin”svið