Inntaka nýrra félaga í Heklu !

Inntaka nýrra félaga í Heklu !


Fjórir nýjir félagar voru teknir inn í Kiwanisklúbbinn Heklu á fundi á Gamlársdag.  Heklufélagar eru vanir að hittast í hádeginu á Gamlársdag og undanfarin ár hefur þessi áramótafundur verið haldinn í boði félaga okkar Magnúsar Jónssonar í húskynnum fyrirtækis hans, Garra ehf.  
 
Að þessu sinni var tilefnið notað til að taka inn nýja félaga og var það Eyjólfur Sigurðsson fyrrum heimsforseti sem

stýrði inntökunni og naut aðstoðar umdæmisstjóra, Hauks Sveinbjörnssonar.  Nýju félagarnir í Heklu heita:  Robert Lagerman, Sighvatur Halldórsson, Hrafn Jökulsson og Stefán Þór Herbertsson. Var inngöngu þeirra fagnað af viðstöddum fundarmönnum og þeir boðnir velkomnir til starfa í Kiwanisklúbbnum Heklu og Kiwanishreyfingunni.