Jólafundur Heklu.

Jólafundur Heklu.


Kiwanisklúbburinn Hekla hélt jólafund sinn á Grand Hótel á föstudaginn 16. Desember.  Á fundinum var Íþróttasambandi fatlaðra afhentur styrkur frá Kiwanisklúbbunum Heklu og Esju að upphæð ein milljón króna.  Að stofni til var styrkurinn afrakstur fjáröflunar á Lambaréttadeginum, sem lengi hefur verið árleg fjáröflunarsamkoma Heklu og nú síðari ár með þátttöku Esju.  Það voru Sigurður R Pétursson, forseti Heklu og Guðmundur Baldursson, forseti Esju sem afhentu styrkinn en fyrir hönd Íþróttasambands fatlaðra hafði verið boðið framkvæmdastjóra sambandsins og

formanni, þeim Ólafi Magnússyni og Sveini Áka Lúðvígssyni, sem veitti styrknum viðtöku.
 
Hekla hefur lengi haft þann sið að bjóða ekkjum látinna félaga til jólafundarins og var þeim sið framhaldið þetta árið og mættu 9 ekkjur til fundarins, auk annarra gesta sem voru makar félaga auk framangreindra fulltrúa frá Íþróttasambandi fatlaðra, fulltrúa frá Kiwanisklúbbnum Esju og sr. Friðriks Hjartar sóknarprests í Garðabæ og frú og fleiri og voru samtals um 45 félagar og gestir á fundinum Á fundinum voru tveir félagar heiðraðir, Sigurður R. Pétursson fyrir 40 ár í Kiwanishreyfingunni  og Stefán Guðnason fyrir 30 ár.

Sigurður R. Pétursson
Forseti  Heklu.