Kiwanis með í Mottumars

Kiwanis með í Mottumars


Krabbameinsfélag Íslands hóf Mottumars hinn 1. mars sl. og leitaði þá eftir samstarfi við Kiwanis og fleiri samtök og þjónustuklúbba um að kynna innan sinna vébanda nýtt fræðsluefni um krabbamein í blöðruhálskirtli.

Afhending fræðsluefnisins fór fram í kynningarskyni um borð í varðskipinu Þór sem sigldi með gesti stutta ferð út frá Reykjavík. 

Í björgunarboxinu sem svo er nefnt, er fræðsluefni sem vonast er til að komist á dagskrá rótarýklúbbanna. Þannig læri fólk að þekkja einkenni og orsakir krabbameins í blöðruhálskirtli. Það tekur aðeins um 10-15 mínútur að sýna myndefnið og skoða bæklingana. Áhöfn varðskipsins og fulltrúar frá Rótarý, Lions. Kiwanis, Oddfellow o.fl. fengu afhent box með fræðsluefninu.

Haukur Sveinbjörnsson, kjörumdæmisstjóri  Kiwanis, tók við björgunarboxi um borð í Þór. Í framhaldi af þessu frumkvæði Krabbameinsfélagsins sendi Magnús eftirfarandi tilmæli til allra forseta rótarýklúbba hinn 2. mars sl.:

Fyrr í mánuðinum var Haukur Sveinsbjörnsson kjörumdæmisstjóri viðstaddur athöfn um borð í varðskipinu Þór, þegar verkefni Krabbameinsfélagsins „Mottumars“ var hleypt af stokkunum. Veitti hann þar fyrir hönd Kiwanis viðtöku björgunarboxi með kynningarefni og kynningarmyndböndum um blöðruhálskrabbamein sem er áhersluverkefni að þessu sinni. Við móttökuna var upplýst að öllum Kiwanisklúbbum verði sent samskonar björgunarbox til kynningar í klúbbunum.
 

Ég vil nú hvetja alla klúbba til að taka þetta á dagskrá nú í mars eða apríl og kynna þetta efni fyrir félögunum.

 

Með Kiwaniskveðju

Gunnsteinn Björnsson Umdæmisstjóri

 

 

Krabbameinsfélagið stefnir að því að fræðsluefnið verði komið fyrir páska til allra klúbba sem hyggjast taka það á dagskrá. Hægt er að panta björgunarboxið  fyrir hvern klúbb með því að senda tölvupóst á netfangið bjorgunarbox@gmail.com. Þar þarf að koma fram nafn klúbbsins, nafn móttakanda og hvert eigi að senda boxið auk fjölda þeirra, sem mætir jafnaðarlega á fundi. Þeir sem vilja geta sótt björgunarbox til Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík en það þarf að láta vita af því með tölvupósti á bjorgunarbox@gmail.com.