Lambaréttakvöld Heklu og Esju

Lambaréttakvöld Heklu og Esju


Lambaréttakvöld Heklu og Esju var haldinn s.l. föstudagskvöld 16.október. Að venju var eldað allt sem tilheyrir lambinu. Ræðumaður kvöldsins var Guðmundur Hallvarðsson, veislustjóri var Halldór Einarsson (Henson) og uppboðshaldari var Ragnar Örn Pétursson. Skemmtikraftur Björn Bragi. Mikil stemming var í salnum, maturinn frábær, listmunauppboðið gekk

mjög vel, 18 listaverk boðin upp og seldust öll. Mikið keypt af happadrættismiðum enda góðir vinningar. Kvöldið heppnaðist í alla staði mjög vel og þakka klúbbarnir öllum listamönnum og styrktaraðilum fyrir aðstoðina.


Birgir Benediktsson
forseti Heklu.