Sumarbúðir Kiwanis í Tékklandi

Sumarbúðir Kiwanis í Tékklandi


Ágætu Kiwanisfélagar að beiðni umdæmisstjóra sendi ég meðfylgjandi upplýsingar um sumarbúðir fyrir unglinga á vegum Kiwanis.  Þær verða í Tékklandi 15.-20. júlí 2015 og gert er ráð fyrir 5 þátttakendum frá Kiwanisumdæminu Ísland - Færeyjar.  Óskað er eftir að forsetar klúbba láti umdæmisstjóra vita um unglinga sem gætu tekið þátt.

 

Umsóknarfrestur er til 31. mars þannig að nauðsynlegt er að koma uppástungum á framfæri við fyrsta tækifæri á netfangið:  umdaemisstjori@kiwanis.is    Með Kiwaniskveðju Kristján G. Jóhannsson umdæmisritari

Klikka HÉR