Frá Fræðslunefnd !

Frá Fræðslunefnd !


Nú fer af stað fræðsla fyrir verðandi embættismenn,  byrjað verður á fræðslu fyrir verðandi svæðisstjóra nk. laugardag í Kiwanishúsinu á Bíldshöfða.  Sú nýbreytni verður þetta árið að farið verður með fræðslu forseta og ritara út í svæðin og farið eftir vilja meirihluta þátttakenda í umræðuhópi  á Umdæmisþinginu sl. haust.

Fyrsta fræðslan verður í Sögusvæði laugardaginn 21. mars í Þorlákshöfn og hefst kl. 11.  Er það von fræðslunefndar að þessi nýbreytni verði til þess að verðandi embættismenn sjái sér fært að mæta betur en verið hefur verið undanfarin ár. 

 

Berum höfuðið hátt     -    Horfum upp  ekki niður -  horfum fram ekki aftur

 

Fræðslunefnd.