Keilismenn gefa krúttlega bangsa í alla sjúkrabíla

Keilismenn gefa krúttlega bangsa í alla sjúkrabíla


Á gamlársdag afhentu Keilismenn nýjar birgðir af böngsum til Brunavarna Suðurnesja en bangsarnir eru ætlaðir til huggunar fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda.

Hefð er fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til Brunavarna Suðurnesja, við síðustu afhendingu var tekin sú ákvörðun að gefa þá framvegis í nafni Ævars Guðmundssonar fyrrverandi Keilismanns sem lést árið 2008

Við það tækifæri var bangsi nefndur Ævar, fjölskyldan hans styrkti verkefnið „Kiwanisklukkan“ á hringtorginu á gatnamótum Hafnargötu og Aðalgötu og síðan þá hefur verið afhentur styrkur í nafni hans.

 

Eiður Ævarsson forseti Keilis sá um að afhenda bangsana en hann er einmitt sonur Ævars heitins. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Eiður og Bjarni Rúnar Rafnsson frá Brunavörnum Suðurnesja með bangsana góðu.

 

Víkurfréttir greindu frá

www.vf.is