Frá Fræðslunefnd !!

Frá Fræðslunefnd !!


Umdæmisþing verður haldið í Kópavogi 12. - 14. september næstkomandi.  Föstudaginn 12. september kl. 10:00 - 12:00 eru verðandi forsetar og ritarar klúbba boðaðir til fræðslu í umsjón fræðslunefndar umdæmisins.  Auk efnis frá fræðslunefnd verður ráðgjafi okkar frá heimsstjórn (e. trustee) með innlegg,
Hjördís Harðardóttir segir frá fjölgunarverkefni, Ástbjörn Egilson fjallar um Eliminate verkefnið og embættismenn umdæmisins koma á staðinn.  Ætlast er til að allir verðandi forsetar og ritarar sæki fræðslu.