Sóborg veitir styrki !

Sóborg veitir styrki !


Í tilefni 20 ára afmælis Sólborgar í Hafnarfirði í vor, veitir klúbburinn styrki til nokkurra aðila í Hafnarfirði.  Einn þeirra er Skammtímavistunin að Hnotubergi 19, en þau fengu þann 14. apríl s.l. afhent Nintendo leikjatölvu ásamt tveimur leikjum, myndavél og gasgrill ásamt yfirbreiðslu og gaskút.
Á fyrri mynd sést Erla María Kjartansdóttir afhenda Elvu Hjálmarsdóttur leikjatölvuna, leikina og myndavélina. Á seinni myndinni taka starfsmenn og hluti vistmanna á móti grillinu, en það var afhent utanhúss.