Vinnuhópur um umdæmisþing.

Vinnuhópur um umdæmisþing.


Tillögur sem Ragnar Örn Pétursson lagði fram á síðasta umdæmisþingi og var vísað til umdæmisstjórnar,  hafa  nú verið teknar fyrir og skipaði umdæmisstjóri 5 hópa sem eiga að fjalla um tillögurnar. Vinnuhópurinn sem fjalla á um umdæmisþing, skipulag þeirra, hvernig hægt er að gera þingin áhugaverðari og árangursríkari fyrir hreyfinguna hittist á miðvikudaginn á sínum fyrsta fundi á Bíldshöfða 12.
Vinnuhópinn skipa:  Guðrún Jóhannsdóttir Dyngju, Birgir Sveinsson Helgafelli, Matthías G Pétursson Setbergi, Gísli Skarphéðinsson Kötlu ásamt undirritaðri sem stýrir starfi vinnuhópsins.   Margar góðar tillögur að breytingum komu fram sem skemmtilegt verður að vinna að áfram í þessum góða hópi.
 
Jóhanna M Einarsdóttir