Fræðsla embættismanna.

Fræðsla embættismanna.


Nú er nýlokið fræðslu embættismanna hér í Kaplakrikanum, og var mæting til fræðslu með ágætum. Fræðsla féhirða var í höndum Eyþórs verðandi umdæmisritara, Bragi og Hildisif sáu um fræðslu ritara og Svavar og Kristinn sáu um að fræða verðandi forseta.
 
Í lok fræðslu tók Dröfn Sveinsdóttir verðandi Umdæmisstjóri til máls og kynnti áherslur og markmið á komandi starfsári og síðan kom Joe Nobb kynningarfulltrúi KI-EF til máls og flutti okkur skemmtlegt og líflegt erindi og því næst var tekið hádegisverðarhlé.