Sumarhátíð Ægissvæðis

Sumarhátíð Ægissvæðis


Sumarhátíð Ægissvæðis verður haldin í Garði   um  helgina  en  á sama tíma fer fram Sólseturshátíðin í Garði þannig að margt verður um manninn í Garðinum og mikið um að vera. Eins og fram kemur í dagskránni verður farið  í leiki með börnunum síðan verður Brennókeppni milli klúbbanna í svæðinu,  það er spurning hvaða klúbbur fer heim með bikarinn þetta árið ???
Verðum með tjald Eldeyjarfélaga og geta þeir sem ekki ætla að tjalda haft þar aðstöðu.    Það er því ekkert mál að skjótast dagsferð í Garðinn og sýna sig og sjá hressa Kiwanisfélaga

Sjáumst hress og kát í Garðinum.
 
Jóhanna M. Einarsdóttir

Kjörsvæðisstjóri Ægissvæðis
 
Dagskrá klikka HÉR