Kiwanisklúbburinn Ós styrkir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

Kiwanisklúbburinn Ós styrkir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands


Kiwanisklúbburinn Ós færir hér Heilbrigðisstofnun Suðausturlands HSSA styrk að upphæð 250.000- til kaupa á stafrænum röntgenframköllunartækjum. Það má nefna að í janúar 2006 styrkti Ós kaup á röntgenmyndavél til HSSA.
 
Klúbburinn óskar HSSA velfarnaðar og vonar að styrkur þessi verði skref á þeirri leið. 
Á mynd er gjaldkeri Óss Miralem Haseta og ritari Óss Sigurður Einar Sigurðsson, Ester Þorvaldsdóttir veitir styrknum viðtöku.