Umdæmið kaupir húsnæði

Umdæmið kaupir húsnæði


Kiwanisumdæmið Ísland – Færeyjar hefur fest kaup á húsnæði á Bíldshöfða 12 í Reykjavík. Þetta er stórglæsileg og vönduð  eign á 3. hæð í lyftuhúsi alls  162 fm að stærð.   Í húsnæðinu er góður salur, eldhús, snyrting, fundarherbergi, skrifstofur og geymsla.  Við fáum húsnæðið afhent ekki síðar en í maí, en þó líklega fyrr.
Ákveðið hefur verið að bjóða klúbbum afnot af hússnæðinu fyrir fundarhald gegn vægu gjaldi.  Húsnæðið hentar mjög vel undir alla starfssemi hreyfingarinnar eins og umdæmisstjórnarfundi, klúbbfundi, nefndarfundi, stjórnarfundi ofl.   Fljótlega eftir afhendingu verður Kiwanisfélögum boðið að koma og skoða aðalskrifstofu Kiwanis Umdæmisins Ísland – Færeyjar að Bíldshöfða 12 í Reykjavík.