Jólaball Kiwanisfélaga á Akureyri var haldið 29.Des 2012

Jólaball Kiwanisfélaga á Akureyri var haldið 29.Des 2012


Okkar árlega jólatrésball var haldið í sal K.F.U.M og K. Laugardaginn 29. des 2012.
Mætingin þetta árið var með allveg eindæmum Góð og höfðu elstu félagar ekki séð svona marga saman komna lengi við þetta tilefni, það heimsóttu okkur þrír hinir ágætustu jólasveinar sem að heilluðu börn sem og aðra viðstadda með söng og góðum gjöfum úr pokunum sínum.
 
Um undirleik á harmonikku sá félagi okkar Pálmi Stefánsson en um forsöng og kynningu sá Þorgeir Jóhannesson eftir söng og dans var boðið uppá pylsur og ávaxtasafa fyrir yngrafólkið en kaffi og kökur fyrir þá sem vildu, vonandi fengu allir nægjusýna og fóru mettir og ánægðir heim að lokinni skemmtuninni.