Mosfell styrkir Reykjadal

Mosfell styrkir Reykjadal


Laugardagsmorguninn 15. desember komu nokkrir félagar úr Kiwanisklúbbnum Mosfelli saman í Reykjadal, sumardvalarheimili  Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og afhentu Sólveigu Hlín Sigurðardóttur forstöðumanni  heimilisins  300 þúsund króna styrk til reksturs helgarvistunar barna þar í vetur. 
 
Undanfarið hafa klúbbfélagar  með aðstoð félaga í Skólahljómsveitsveit Mosfellsbæjar selt sælgætispakka til fjáröflunar í Styrktarsjóð klúbbsins.   Kiwanisklúbburinn Mosfell kann öllum bestu þakkir fyrir góðar móttökur  sölufólksins.