Keilukvöld hjá Heklufélögum.

Keilukvöld hjá Heklufélögum.


Nokkrir Heklufélagar hittust í gærkveldi 11.des og spiluðu keilu. Mæting var ekki góð en menn höfðu gaman af.Sigurvegari kvöldsins var Guðmundur Oddgeir.
Nú er spurningin hvort fleiri klúbbar æfi eða stundi keilu og hvort þeir hafi áhuga á að mæta með okkur seinna í vetur
 
eða skori á okkur í keppni. Keila er fyrir alla konur og karla á öllum aldri.
Þetta er ekki mikill kostnaður, brautin kostar kr. 4.500,- í 55 mínútur.
Ef einhverjir hafa áhuga þá hafið samband.

Birgir Benediktsson
forseti Heklu.