Ós 25ára

Ós 25ára


Nú er komið að því að Kiwanisklúbburinn Ós haldi uppá 25 ára afmæli sitt.  Það verður gert í tengslum við svæðisráðsfund laugardaginn 10. nóvember n.k. en þá fara jafnframt fram stjórnarskipti.
Að loknum fundi verður um kvöldið skemmtisýningin  Eitt lag enn á Hótel Höfn sjá http://skemmtifelag.is/ .  Í boði er 3ja rétta máltíð og
skemmtun og ball á kr. 7.800 fyrir manninn. Ennfremur eru 2 pakkar í gangi; gisting í 2ja manna herbergi á 16.500 kr. + skemmtun, ball og matur. Gisting í eins manns herbergi fyrir sama pakka er 17.300 kr.
Öllum kiwanisfélögum er boðið að koma að samgleðjast með okkur á þessum merku tímamótum.
Hver klúbbur skal hafa samband beint við Hótel Höfn í síma 478 12 40 eða hjá hótelstjóra 899 18 56 til að panta gistingu.
 
Vinsamlegast látið ritara Óss ennfremur vita í netfangi seinars@gmail.com .
Vonumst til að sjá sem flesta kiwanisfélaga alls staðar af landinu.