Hittingur hjá Gullkúbbnum

Hittingur hjá Gullkúbbnum


 
Þá er komið að næsta hitting hjá Dagklúbbnum/Gullklúbbnum okkar en það eru konur sem eru hættar að vinna og hafa áhuga á að hittast og jafnvel stofna klúbb sem hittist að deginum til.
Fundurinn verður n.k. miðvikudag þann 5. september  kl.17:00  í Café Flóru, Grasagarðinum, Laugardal.
Endilega kíkið við og takið með ykkur gesti. Þar sem við þyrftum að vita ca fjölda þá væri flott ef þið létuð Guðbjörgu vita í síma 695-3669.
Sjáumst hressar og kátar – Kvennanefnd Umdæmisins.