Kiwanisklúbbarnir Keilir og Varða afhenda hjálma.

Kiwanisklúbbarnir Keilir og Varða afhenda hjálma.


Kiwanisklúbbarnir Keilir og Varða afhentu fyrstu bekkingum allra grunnskóla í Reykjanesbæ á annað hundrað hjálma fyrir framan húsnæði klúbbana að Iðavöllum 3 sl. fimmtudag.  Það voru þakklát og glöð börn sem tóku við hjálmunum sínum í sól og blíðu.

 
Yfir 20 þúsund börn hafa notið góðs af þessari gjöf Eimskips og Kiwanis í gegn um árin.  Hjálmarnir hafa nú þegar sannað gildi sitt og eru börnin hvött til að nota þá þegar þau fara á reiðhjól, hlaupahjól, línuskauta og hjólabretti.
 
 Fv. Björn er forseti Keilis, Jóhanna er forseti Vörðu og Ragnar Örn er umdæmisstjóri Kiwanis í umdæminu Ísland Færeyjar.