Hjálmadagur Kaldbaks og Emblu

Hjálmadagur Kaldbaks og Emblu


Laugardaginn 19. maí afhentu kiwanisklúbbarnir Kaldbakur og Embla reiðhjólahjálma til allra 7 ára barna á Akureyri og nágrenni. Afhendingin var með hefðbundnu sniði, börn og fullorðnir komu að ná í hjálma og þáðu veitingar í boði klúbbanna. Efnt var til happdrættis og fengu tvö börn reiðhjól í vinning.
Veðrið var dásamlegt og gaf fólk sér tíma að setjast niður og ræða málin og spyrjast fyrir um Kiwansihreyrfinguna. Var þetta mjög ánægulegur dagur í alla staði. Föstudaginn 18. maí höfðu Kaldbaksfélagar sem búsettir eru í Dalvíkurbyggð  afhent hjálma í sinni sveit.