Aðalfundur hjá Kiwanisklúbbnum Heklu.

Aðalfundur hjá Kiwanisklúbbnum Heklu.


Aðalfundur Heklunnar var haldinn 8. Maí í Félagsheimili Seltjarnarness. Það voru hefðbundin aðalfundar- og félagsmálastörf.
 
Axel Bender, sem hefur verið í Kiwanishreyfingunni í 45 ár fékk heiðursskjal og barmmerki  þessu til staðfestingar. Axel hefur verið m.a.  5 sinnum forseti Heklunnar og gegnt    mörgum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn og Kiwanishreyfinguna.   Axel er fæddur 3. ágúst 1938.
 
 
 
Einnig var minnst Einars Þóris Sigurðssonar sem andaðist 9. apríl 2012. Einar hafði verið í Kiwanishreyfingunni  í 45 ár. Hann var fæddur 18.desember 1923. Einar gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Hekluna.  Heklufélagar senda aðstandendum innilegar samúðarkveðju.

Kiwanisklúbburinn Hekla
Birgir Benediktsson?ritari.