Andlát

Andlát


Félagi okkar í Höfða Valgeir Daðason slökkviliðsmaður lést aðfararnótt þriðjudags 28. febrúar s.l  langt fyrir aldur fram aðeins 60 ára að aldri, en Valgeir var búinn að berjast við erfið veikindi. Valgeir var virkur og mikill Kiwanismaður. Valgeir gekk í Höfða árið 1992 og gegndi ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum innan klúbbsins og má þar nefna, störfum meðstjórnenda, starfi gjaldkera, féhirðis, ritara og kjörforseta og starfi forseta klúbbsins starfsárið 2008-2009. Valgeir var mikill útivistar og náttúruunnandi þar sem við félagar hans fengum að njóta með honum í skipulögðum göngu og fjallaferðum.
 
Eftirlifandi eiginkona Valgeirs er Guðríður Andrésdóttir og eignuðust þau tvær dætur en Valgeir átti son fyrir og færum við þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Við minnumst Valgeirs með þökk og virðingu. Blessuð sé minning hans.
F.h. Kiwanisfélaga.
Gestur Halldórsson.