Jólagjafir frá Heklufélögum.

Jólagjafir frá Heklufélögum.


22. desember afhentu Heklufélagar vistfólkinu á Bjargi jólagjafir.
Vistheimilið Bjarg á Seltjarnarnesi veitir langtíma geðfötluðum einstaklingum heimili.
Það er pláss fyrir 12 einstaklinga. Hjálpræðisherinn á og rekur heimilið, sem er á föstum
fjárframlögum frá Heilbrigðisráðuneytinu. Heimilið hefur starfað síðan 1968,
og einn vistmannanna hefur búið þar frá byrjun.
Heklufélagar hafa gert þetta í mörg ár og er alltaf jafn ánægjulegt.

Heklufélagar óska Kivanisfélögum gleðilegs og gæfuríks komandi árs og þökkum það liðna.

Birgir Benediktsson ritari Heklu.