Styrktarverkefni í lok árs

Styrktarverkefni í lok árs


Þann 22. desember heimsóttu tveir vaskir Kötlufélagar, Helgi Straumfjörð formaður styrktarnefndar og Þorlákur Jóhannsson, slökkvistöð  höfuðborgarsvæðisins í  Árbæ.  Þeir færðu sjúkraflutningamönnum bangsa og önnur mjúk dýr fyrir börn sem þurfa á aðstoð sjúkrabíla að halda þegar veikindi og slys steðja að.
 
Við Kötlufélagar  óskum ykkur kæru félagar og fjölskyldum gleðilegs árs og þökkum góðar samverustundir á liðnum árum.
J.K.G