Samstarfssamningur vegna góðgerðarmóts Eldeyjar

Samstarfssamningur vegna góðgerðarmóts Eldeyjar


Guðlaugur Kristjánsson forseti Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í Kópavogi og Óskar Örn Guðbrandsson framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna skrifa undir samstarfssamning varðandi Opna  Góðgerðargolfmóti  Eldeyjar 2011. 
 

Allur hagnaður af mótinu rennur óskiptur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.

Mótið er opið öllum og verður haldið 4.júni 2011 á golfvelli  Kópavogs og Garðabæjar.  Leikið verður Texas Scramble og jafnframt verður snærisleik bætt inní. Kiwanisfélagar eru hvattir til að fjölmenna í ár.  Enn það hefur verið sérstaklega ábótavant hvað Kiwanisfélagar eru að mæta illa í þetta mót.

Nánari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi skjali: Góðgerðargolfmót Eldeyjar 2011