Óskabörn þjóðarinnar fá reiðhjólahjálma að gjöf.

Óskabörn þjóðarinnar fá reiðhjólahjálma að gjöf.


Eimskipafélagið og Kiwaninshreyfingin gefa öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunnskóla í vor reiðhjólahjálma. Verkefnið er árviss viðburður félaganna til að stuðla að umferðaröryggi yngstu hjólreiðarmanna landsins, en þetta er í áttunda skipti sem félögin standa fyrir hjálmagjöfum. 

 Í ár hefur verkefnið hlotið nafnið „Óskabörn þjóðarinnar", en samtals munu um 4.300 börn fá reiðhjólahjálma að gjöf í þetta skipti. Meðalfjöldi barna í 1. bekk á þessum átta árum hefur verið um 4.200 börn hvert ár,  sem þýðir að yfir 30.000 börn eða 10% af þjóðinni hafa notið góðs af verkefninu.


„Verkefnið er okkur ómetanlegt og stendur okkur nærri" segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips. „Á hverju ári fáum við fregnir af því frá foreldrum, lögreglu og skólayfirvöldum að hjálmarnir sem við höfum verið að gefa hafið bjargað barni frá alvarlegum meiðslum."

Á næstu dögum og vikum mun Kiwaninshreyfingin fara í alla grunnskóla landsins og afhenda börnum 1. bekks grunnskóla hjálma. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að vera vakandi fyrir því þegar börn þeirra koma heim með hjálma og aðstoða þau við að stilla þá rétt.

Nánari upplýsingar um hjálmaverkefnið og öryggi barna í umferðinni er hægt að fá á facebooksíðunni www.facebook.com/oskaborn.

 

vísir.is greindi frá.

 

Myndir klikka hér