Jólagjafir frá Heklufélögum.

Jólagjafir frá Heklufélögum.

  • 27.12.2010

Miðvikudaginn 22 desember s.l afhentu Heklufélagar vistfólkinu á Bjargi jólagjafir. Vistheimilið Bjarg á Seltjarnarnesi veitir langtíma geðfötluðum einstaklingum heimili.
Það er pláss fyrir 12 einstaklinga. Hjálpræðisherinn á og rekur heimilið, sem er á föstum
fjárframlögum frá Heilbrigðisráðuneytinu.
Heimilið hefur starfað síðan 1968, og einn vistmannanna hefur búið þar frá byrjun.
Heklufélagar hafa gert þetta í mörg ár og er alltaf jafn ánægjulegt.

Kveðja.
Birgir Benediktsson
ritari Heklu.