FRÉTTATILKYNNING

FRÉTTATILKYNNING

  • 02.06.2010

Eimskip og Kiwanis gefa öllum 7 ára börnum reiðhjólahjálma
- tæplega 10% þjóðarinnar hafa fengið hjálma  síðustu sjö ár
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands ehf. gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma.  Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að   auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins.  Alls verða 4200 reiðhjólahjálmar gefnir í ár og munu Kiwanisklúbbar og Eimskipafélag Íslands ehf. vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna.
Fyrir sjö árum tók öll Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands ehf.
 höndum  saman  að fyrirmynd Kiwanis-klúbbusins Kaldbaks  á Akureyri og gáfu reiðhjólahjálma á landsvísu. Frá upphafi verkefnisins hafa hátt í 30 þúsund hjálmar verið gefnir 7 ára börnum sem nú er um 10% þjóðarinnar. “Markaðsverð verkefnisins hefur kostað um 100 milljónir frá upphafi og er þeim peningum vel varið. Ljóst er samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni víðsvegar um land að þessir hjálmar hafa bjargað mannslífum og  mörgum ungmennum frá alvarlegum meiðslum.” Segir Ólafur Hand hjá Eimskipafélagi Íslands hf,
Eimskipafélag Íslands ehf.  leggur ríka áherslu á öryggismál í allri sinni starfsemi og vill með þessum hætti leitast við að miðla þeirri reynslu til barnanna. Börn þurfa að vera meðvituð um mikilvægi öryggis í umferðinni.
Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard forstöðumanns Forvarnahússins.  “Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir” segir Herdís.
Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Hjálmur sem farið er vel með á að endast í 5 ár.
Nemendur í 1. bekk víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Eimskipsafélags Íslands ehf. að Sundakletti í Reykjavík í dag þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálmana sína. Var öllum boðin hressing yfir tónlistarflutningi Polla Pönks sem gladdi börnin. Eins litu nokkrir velbúnir lögreglumenn við á vélfákum sínum til að ræða við börnin og sýna þeim hjólin sín og hjálma.
 
Athygli á alþjóðavettvangi
Þetta árið verða þúsundir íslenskra skólabarna öruggari í umferðinni með hjálma merkta Eimskip og Kiwanis. “Það er Kiwanishreyfingunni mjög mikilvægt að fyrirtæki í landinu sýni verkefni sem þessu áhuga og stuðning,” sagði Guðmundur Oddgeir Indriðason formaður hjálmanefndar Kiwanis  “Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli víðsvegar um heim og eru dæmi þess að erlendir aðilar hafi tekið það upp, meðal annars í Bandaríkjunum.”