Gestafundur hjá Kiwanisklúbbnum Sólborg, Hafnarfirði

Gestafundur hjá Kiwanisklúbbnum Sólborg, Hafnarfirði

  • 31.01.2010

Fimmtudaginn 4. febrúar kl. 19:30 verður gestafundur hjá Kiwanisklúbbnum Sólborg í Hafnarfirði, sem er kvennaklúbbur.
Í klúbbnum eru 25 konur á öllum aldri úr Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Reykjavík. Okkur vantar alltaf fleiri konur í hópinn okkar og þið sem hafið áhuga á að skoða Kiwanis betur endilega kíkið á okkur á fimmtudaginn. Við ætlum að hafa þetta léttann og skemmtilegan fund, kynna Kiwanis, vera með happadrætti og eitthvað skemmtilegt.
Búið er að stofna viðburð á Facebook sem heitir Gestafundur hjá Kiwanisklúbbnum Sólborg, það væri frábært ef þið gætuð skráð þátttöku þar eða bara mæta á svæðið
Við tökum vel á móti ykkur
Frítt inn
Nánari upplýsingar veita
Hjördís, hjordishar@simnet.is
Guðbjörg, fagraberg@islandia.is
Við hlökkum til að sjá ykkur