Skjöldur styrkir 10.bekk

Skjöldur styrkir 10.bekk

  • 11.03.2009

Kiwanisklúbburinn Skjöldur afhenti í dag 10. bekk grunnskóla Siglufjarðar styrk að upphæð 50.000,- kr í ferðasjóð bekkjarins.  Af þessu tilefni var 10. bekk boðið til pizzuveislu í Kiwanishúsinu. 

Styrkurinn var veittur fyrir samstarf bekkjarins og Kiwanis við þrettándabrennu Skjaldar nú í vetur en 10. bekkur tók virkan þátt í hátíðahöldunum. Þau  mættu öll í grímubúningum í blysförina og sáu einnig um grímuball fyrir börn eftir brennuna.  Stóðu þau sig með mikilli prýði og settu skemmtilegan svip á daginn.