Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA 2009

Konudagsblómin frá Kiwanisklúbbnum JÖRFA 2009

  • 08.02.2009

Nú er Bóndadagurinn afstaðinn og eflaust hefur konan gert eitthvað fyrir þig á þeim degi. Nú er komið að því að við stöndum okkur, konudagurinn er sunnudagurinn 22. febrúar n.k. og hvað er þá betur við hæfi en að gefa konunni blómvönd !
Kiwanisklúbburinn Jörfi hefur um árabil selt ferska og fallega blómvendi í fjáröflunarskyni og eru þeir sendir heim á konudaginn milli kl. 10 - 13.
Verðið er kr. 2500 fyrir vöndinn.  Háttur Jörfafélaga við sölu er sá sami, selt er fyrirfram og skráð niður nafn og heimilisfang viðtakanda og er blómunum síðan ekið heim á konudaginn milli kl. 10-13.00.
Við viljum minna þá kiwanisfélaga og aðra er ætla að gefa blóm á konudaginn að muna eftir Jörfa.  Hægt er að panta blóm á netfangi ghelgi@centrum.is  skrá þar nafn og heimilisfang viðtakanda og nafn og kennitölu sendanda.  Greiða þarf inn á bankareikning 1175-26-8776  kt. 431178-0449 til staðfestingar á pöntun. Pöntun þarf að berast í síðastalagi 19 febrúar
Verðið er kr. 2500 fyrir vöndinn
Allur ágóði rennur í styrktarsjóð Jörfa.
Með kiwaniskveðju.
Kiwanisklúbburinn Jörfi