Jólafundur Jörfa var haldinn 9.dsember að Hliði á Álftanesi. Þar er nýuppgerður veitingastaður sem Jóhannes í Fjörukránni rekur nú. Við vorum fyrsti hópurinn sem þar kemur eftir endurbætur og fengum sérstakar móttökur í samræmi við það. Húsakynni eru skemmtileg og skreytt ótal munum úr náttúrinni og er sjón sögu ríkari. Við mættum tæplega 40 og flest komum við saman í rútu og áttum góða kvöldstund. Sérstaklega var ánægjulegt að þrjár ekkjur látinna félaga komu til að gleðjast með hópnum. Friðjóni Hallgrímssyni var færð gjöf í tilefni 70 ára afmælis og Haraldur Finnsson var sæmdur gullstjörnu Kiwanis. Þá las Þórarinn Eldjárn smásögu úr nýútkominni bók og séra Þór Hauksson flutti hugvekju og mæltist báðum vel. Félagar sögðu gamansögur að venju og fóru allir til síns heima glaðir í bragði eins og Jörfamönnum er tamt.
Um síðustu helgi var haldin útihátíð Óðinssvæðis í Ártúni við Grenivík.
Kiwanisklúbburinn Hekla hefur gert það gott í starfi fyrir samfélagið og haldið vel utan um það sem fram hefur farið í klúbbnum. Klúbburinn hefur m.a gefið út fréttablað frá upphafi og kom fyrsta tölublað út í marz 1966 (já mars var skrifað með z í gamla daga)
Þessar frábæru heimildir klúbbsinns er nú orðið aðgengilegar á veraldarvefnum á timarit.is, en það
Á Víkingahátíðinni í Hafnafirði sem haldin var í 21 skipti dagana 16 til 19 júni var keppt um titilinn Sterkasti fatlaði maður Íslands. Í þetta skiptið voru eingöngu íslenskir þáttakendur en sigurvegarar keppninnar halda síðan til Englands þar sem keppt verður um titilinn sterkasti fatlaði maður heims síðar á þessu ár. Það var síðan
Sælir ágætu Kiwanismenn og konur. Á morgun kl 10.00 fer fram landsmót okkar í golfi og fer mótið fram á Þorlákshafnarvelli eins og áður en það er mjög góð aðstaða hjá Þorlákshafnar mönnum. Þáttaka er heldur dræm og því viljum við byðja Kiwanisfólk að rífa fram golftækinn og skrá sig til leiks en allar nánari upplýsingar eru hér að neðan
Nú er komið á vefinn inn í myndasafni fullt af myndum frá þinginu okkar sem fram fór nú í maí það var Magnús Svavar Magnússon félagi í Eldey sem tók þessar myndir og Steinn Ástvaldsson sendi líka inn myndir og berum við þeim bestu þakkir fyrir.
Laugardaginn 28. maí s.l. fóru Heklufélagar ásamt eiginkonum á Njáluslóðir. Fararstjóri og leiðsögumaður var Bjarni Eiríkur Sigurðsson, Bjarni er vel að sér í Brennu Njálssögu og fór hann með okkur í Njálusetrið á Hvolsvelli og að Bergþórshvoli og víðar um Landeyjar og Fljótshlíð þar sem sagan gerist.
Heimsóttum Bjarna að
Ánægjuleg tíðindi hafa borist frá Evróðuþinginu í Austurríki en Óskar okkar Guðjónsson úr Eldey í Kópavogi var kjöinn til embættis Evrópuforseta með miklum yfirburðum, ekki nóg með það heldur var
uppskera Norðurlanda í kosningum á Evrópuþing í Villach mjög góð.
Í kosningum til Evrópu trustee hafði Paul Inger Paulson sigur í annari umferð og í Evrópuforseta kosningum vann Óskar okkar stór sigur fékk 135 atkvæði af 176 gildum .
Óskar þarf vart að kynna fyrir
Jólafundur Kiwanisklúbbsins Drangeyjar var haldinn í gærkvöldi. Fjölmenni var og buðu félagar konum sínum á fundinn.
46. umdæmisþingi Kiwanis lauk með glæsilegu hófi í sal FÍ á laugardagskvöldið. Þar sá veitingahúsið Laugarás um gómsætar veitingar sem gestirnir gerðu góð skil. Eftirréttur í hófinu var í boði Bása og Kötlu sem gáfu ljúffengar rjómatertur í tilefni af afmælisárum klúbbanna.
Veislustjóri var Friðjón úr Kiwanisklúbbnum Jörfa. Hann hafði frá mörgu spaugilegu að segja og veltust veislugestir of um af hlátri. Bjarni Arason sá um skemmtiatriði og hljómsveitin Upplyfting sá um fjörið á ballinu. Einn Kiwanisfélaga Sigursteinn Hákonarson sem er betur
Föstudaginn 13. maí var farið með erlenda gesti á Kiwanisþinginu um Reykjanes. Það var Gústi hjá Unique Iceland tours sem fór með hópinn á sérútbúnum jeppa sem kemst yfir fjöll og firnindi. Þó Reykjanesskaginn sem ekki mjög stór er þar margt sjá. Hópurinn stoppaði nokkrum sinnum við Kleifarvatn og sá m.a. annars tröllið í vatninu, hellisskúta og jarðhitasvæðið í Seltúni. Þá var keyrt að Geitahlíð og gengið upp á Stóru-Eldborg sem er sérlega glæsilegur hraungígur. Þaðan var svo haldið á Selatanga. Þar má sá má sjá tóftir sjóbúða og fallegar
Föstudaginn 13. maí var umdæmisstjórnarfundur hjá Kiwanis og var hann haldinn í Kiwanissalnum að Bíldshöfða 12.
Þar var gengið til dagskrár. Eftir að Gunnsteinn umdæmisstjóri setti fundinn fluttu þeir svæðisstjórar sem voru viðstaddir skýrslu.
Það markverðasta var að nýr klúbbur hefur verið stofnaður á Óðinssvæði og er það kvennaklúbburinn Freyja sem er staðsettur á Sauðárkróki. Allir svæðisstjórar hafa verið duglegir að heimsækja klúbba og má nefna að á Ægissvæði hafa bæst við sjö nýir félagar hjá Eldey.
Eftir skýrslur svæðisstjóra flutti Gylfi formaður K-dagsnefndar erindi þar sem kom fram að BUGL og PIETA yrði styrkt í haust og nefndi að hann
Eftir hádegishlé tók forseti Kiwanis International European Federation Ernest Schmid til máls og þakkaði Óskari fyrir stuðninginn við stífkrampaverkefnið. Þá ávarpaði Daníel Vigneron ráðgjafi umdæmisins Ísland-Færeyjar viðstadda og fjallaði um klúbbinn sinn og stækkunarmöguleika hjá þeim. Næst tók til máls Eivind Sandnes frá Norden umdæminu og talaði á norsku. Talaði hann um safnanir til UNICEF og upphæðir sem hefðu safnast hjá þeim fyrir börn. Gylfi formaður K-dags kynnti PIETA og BUGL verkefnin sem verða styrkt í haust. Unnur Heba starfsmaður á BUGL sagði frá því hvernig er unnið þar. Jóhanna María Eyjólfsdóttir formaður PIETA kynnti nýstofnaða hreyfingu og starfið sem verður
Umdæmisstjóri Gunnsteinn Björnsson hóf þingfund á því að skipa kjörnefnd. Þá bað hann viðstadda að minnast fallina Kiwanisfélaga með einnar mínútu þögn. Þá flutti hann pistil um ár sitt sem umdæmisstjóra. Að því loknu las hann pistil Sögusvæðis fyrir fjarstaddan Tómas svæðisstjóra.
Þegar Gunnsteinn lauk máli sínu lásu aðrir svæðisstjórar sína pistla. Inntak pistla þeirra er í þingblaði. Fjarstaddur svæðisstjóri Færeyjasvæðis bað fyrir kveðjur á þingið.
Gunnsteinn fór yfir samantekt úr málstofu markaðs- og kynningamála. Þar var m.a. fjallað um að hver klúbbur greini sína stöðu, ákveði hverjir eiga að koma á þing og hvernig haga skuli
Formleg setning 46. umdæmisþings Kiwanis fór fram í Grafarvogskirkju föstudagskvöldið 13. maí. Formaður þingnefndar Jóhann Kristján Guðfinnsson stjórnaði athöfninni. Gunnsteinn Björnsson umdæmisstjóri setti þingið og í kjölfarið voru flutt nokkur ávörp. Sigurður Grétar Helgason prestur flutti hugvekju þar sem hann gerði gleðina að umfjöllunarefni og mikilvægi þess að vera jákvæður. Eftir orð Sigurðar spilaði Guðrún Gígja Arnardóttir á fiðlu. Forseti Kiwanis International European Federation Ernest Schmid flutti ávarp um
Fræðsla Kiwanis hófst í morgun, föstudaginn 13. maí á sameiginlegum fundi forseta, ritara og féhirða umdæmisins. Guðlaugur Kristjánsson setti fund og talaði um áherslur framundan. Jafnframt kynnti hann næsta umdæmisstjóra Hauk Sveinbjörnsson sem lagði áherslu á að efla þurfi innra starf klúbbanna. Haukur hvatti eldri félaga til að víkja fyrir yngri mönnum til að endurnýjun eigi sér stað í stjórnunarstörfum klúbbanna. Hann nefndi sérstaklega klúbbinn Eldey þar sem sjö nýir félagar hafa bæst við á árinu og eru þeir allir í yngri kantinum. Haukur sagðist
Hjálma- og hjóladagur Kiwanisklúbbsins Helgafells var haldinn í samstarfi við GRV miðvikudaginn 4 maí sl. við Hamarsskólann í Vestmannaeyjum í blíðskaparveðri. Dagur byrjaði á því að öllum 53 börnum í 1 bekk var afhentur hjálmur sem Eimskip gefur. Eftir hópmyndatöku, aðstoðuðu 14 kiwanismenn börnin að stilla hjálmana og lögreglan að skoða hjólin ásamt að fræða um hjálmanotkun. Að lokum reyndu börnin fyrir sér í þrautabraut sem konur úr Slysavarnarfélaginu Eykindli, aðstoðuðu þar sem þurfti. Hjálmanefnd Helgafells Myndir sem Guðmundur Þór Sigfússon tók má nálgast HÉR
Aðalfundur Helgafells var haldinn fimmtudaginn 28 apríl s.l . Eftir að forseti hafði sett fund og farið yfir afmælisdaga félaga og taka grínið var tekið matarhlé og snæddur dýrindimáltíð frá Einsa Kalda. Að loknu matarhléi var lestur nokkura fundagerða og þær bornar upp til samþykkis og síðan var kynnt stjórn næsta starfsárs og var það ánægjulegt að kynna fullmannaða stjórn starx á aðalfundi (nýju stjórnina má sjá hér að neðan) Margt var tekið fyrir á þessum fundin, nýjar Klúbbsamþykktir bornar upp, kynningaráætlun, K-dagur, Hjálmadagur og ekki/Fjölskyldudagsferð o.fl Ánægjulegt var að ein umsókn um inngöngu barst stjórn klúbbsinns og var hún kynnt fyrir fundarmönnum. Nýja stjórn Helgafells starfsárið 2016 - 2017 skipa Forseti: Andrés Þ Sigurðsson Kjörforseti: Jónatan Guðni Jónsson Fráfarandi forseti: Kári Hrafnkelsson Ritari: Jóhann Ólafur Guðmundsson Féhirðir: Rúnar Þór Birgisson Gjaldkeri: Ólafur Guðmundsson Erlendur ritari: Ómar Steinsson
Vekjum athygli á að klúbbforseti getur útnefnt fyrirmyndarfélaga.
Fyrirmyndarfélagi
Klúbbforseti staðfestir nöfn þeirra félaga sem eiga tillkall til
þess að kallast “Fyrirmyndarfélagi” til umdæmisritara og
svæðisstjóra. Skilyrði tillnefningar eru :
•
að gerast meðmælandi tveggja nýrra Kiwanisfélaga
•
að sækja svæðisráðstefnur og/eða umdæmisþing,
Evrópu-‐ eða heimsþing
EÐA
•
að taka þátt í annarri boðaðri fræðslu í umdæmi, svæði
eða klúbbi.
•
að taka þáttí a.m.k. 3 þjónustuverkefnum undir merkjum
Kiwanis
Útnefndir “Fyrirmyndarfélagar” fá viðurkenningu á
umdæmisþingi árið 2016 eða síðar á starfsárinu.
Umdæmisritari.
Styrktarsjóður Kiwanisumdæmisins og klúbbarnir Elliði, Esja, Eldey, Dyngja og Hekla hafa gefið sjálfvirkt hjartahnoðtæki að nafni Lucas ásamt fylgihlutum þett til slysa og bráðadeildar Landspítalans í Fossvogi til nokunar í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Formleg afhending fór síðan fram s.l miðvikudag 4 maí á þyrlupallinum við LSH í Fossvogi. Björn Ágúst Sigurjónsson formaður Styrktarsjóðs og Gunnsteinn Björnsson Umdæmisstjóri afhentu