Kæru Kiwanisfélagar Í tilefni 30 ára afmælis boðar Kiwanisklúbburinn Sólborg til afmælisfundar
4. maí nk. kl. 16.00-18.00 og er fundurinn haldinn að Helluhrauni 22, Hafnarfirði. Þann 5. maí nk. eru 30 ár síðan Kiwanisklúbburinn Sólborg var formlega stofnaður
og fagnar klúbburinn því 30 ára afmæli í vor.
Að loknum fordrykk verða léttar veitingar bornar fram og
auk þess verður barinn opinn. Sólborg heiðrar félaga og kynnir styrkveitingu.
Það væri okkur félögum í Sólborgu sönn ánægja ef einhverjir félagar úr ykkar klúbbi, sæju sér fært að fagna með okkur á þessum degi. Klúbburinn vill benda á styrktarsjóð Sólborgar fyrir þá sem vilja minnast tímamótanna með framlagi þangað.
Vinsamlega staðfestið þátttöku með tölvupósti til ritara Sólborgar á
solborgritari@kiwanis.is með viku fyrirvara.
Aðgangur inn á fundinn kr. 3000 Vonumst til að sjá ykkur!
Bestu kveðjur, Sólborgarkonur