40 ára afmælishátíð og stjórnarskiptafundur.

40 ára afmælishátíð og stjórnarskiptafundur.

  • 18.10.2010

Það hefur nú verið ákveðið að Kiwanisklúbburinn Búrfell ætlar að halda stjórnarskiptafund sinn í samstarfi við Kiwanisklúbbinn Ós á Hornafirði. Fundurinn verður haldin á hótelinu á Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 23 október n.k.   Þetta er svo sem ekki í frásögu færandi nema fyrir það að nær allir klúbbfélagar ætla að mæta  ásamt mökum sínum og halda þar upp á 40 ára afmæli klúbbsins.
 
Á boðstólum verður villibráðar veisla. Verð fyrir gistingu í tveggja manna herbergi, villibráðar veislu og morgunverð er kr. 13.450.- á mann. Einnig er í boði sérstakt tilboð á gistingu á föstudagskvöldið ef einhver hefur áhuga á því.

Ef einhver vill slást í hópinn og samfagna okkur á þessum tímamótum auk þess að vera í góðum félagsskap þessara ágætu klúbba hafið þá samband við Hótel Klaustur á Kirkjubæjarklaustri, sími 487 4900 og bókið þátttöku.

 

Kiwanisklúbburinn Búrfell

Diðrik Haraldsson, forseti