Síðasti framkvæmdar- stjórnarfundur Matthíasar

Síðasti framkvæmdar- stjórnarfundur Matthíasar

  • 28.09.2009

Miðvikudaginn 23. september stjórnaði Matthías G. Pétursson umdæmisstjóri sínum síðasta framkvæmdastjórnarfundi. Fundirnir hafa verið haldnir regulega allt starfsárið og verið vettvangur dægurmálanna sem starf umdæmisstjórnar öðru jöfnu snýst líka um.
Af þessu tilefni afhenti Matthías Óskari Guðjónssyni umdæmisstjóratöskuna vænu með þeim orðum að í henni væri farandvit umdæmisstjórnar og eins gott fyrir nýjan umdæmisstjóra að umgangast það af tilhlýðilegri virðingu. Matthías þakkaði að lokum meðstjórnarmönnum sínum góð störf og óskaði alls heilla (ÓG).