Í gær sunnudaginn 15 október fór 7 manna hópur úr 5 klúbbum í Óðinssvæði ásamt svæðistjóra Ingólfi Sveinssyni til Grímseyjar til að taka þátt í stjórnaskiptum í Grímí veðrið lék við okkur og var útsýniið glæsilegt á leiðinni og við komuna til Grímseyjar. Móttökur heimamanna voru eins og ætíð áður með miklum myndarbrag , Stjórnarskiptin fóru fram og ágætar umræður voru svo á eftir þeim. Áður en flogið var aftur heim var farið með okkur í skoðunarfeð um eyjuna og
meðal annars skoðuð súla sem reyst hefur verið þar sem myndir eru ristar sem lýsa dýra og mannlífi eyjarinnar, en í forgrunni þar er útskorin mynd af Kiwanisfélaga no 1 í Grímsey Bjarna Magnússyni
Bestu þakkir fyrir móttökurnar Grímsfélagar.
Aðflug að eynni úr suðri.
Ný stjórn Gríms f.v Jóhannes Henningsson, Svavar Gylfason, Magnús Bjarnason og svæðistjóri Ingólfur Sveinsson
Höfðingin Bjarni Magnússon ristur á Öndvegissúlu.
Nokkrir Kiwanisfélagar ásamt frummyndinni Bjarna Magnússyni við súluna góðu.