Styrktarsjóður Kiwanis styrkir landsöfnunia “ Vinátta í verki “

Styrktarsjóður Kiwanis styrkir landsöfnunia “ Vinátta í verki “


Styrktarsjóður Kiwanis hefur ákveðið að leggja hálfa miljón króna í landsöfnunina “Vinátta í verki “ sem er vegna flóðanna í Grænlandi, og teljum við nauðsynlegt að styrkja vini okkar á Grænlandi eftir slíkar harmfarir. Ef klúbbar og fleira hafa áhuga á að leggja í þessa söfnun þá eru allar upplýsingar hér að neðan um söfnunina.

Hjálparstarf kirkjunnar, í samvinnu við KALAK, Hrókinn og fleiri Grænlandsvini, hefur hrundið af 

stað landssöfnunni ,,Vinátta í verki“ vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi.
Flóðbylgja olli gríðarlegu tjóni í þorpinu Nuugaatsiaq aðfararnótt sunnudags og er fjögurra íbúa enn saknað. Fleiri þorp á svæðinu hafa verið rýmd enda alls ekki víst að hamförunum á Vestur-Grænlandi sé lokið.
Grænlendingar eru næstu nágrannar Íslendinga og milli þjóðanna eru sterk og traust vinarbönd. Þegar snjóflóðið mikla féll á Flateyri 1995 var efnt til landssöfnunar á Grænlandi og safnað hárri upphæð.
Margir eiga nú um sárt að binda á Grænlandi og mikilsvert að þeir finni að Íslendingar eru þeim vinir í raun. Söfnunarfé rennur óskert til neyðarhjálpar og uppbyggingar í samvinnu við sveitarfélagið og hjálparsamtök á svæðinu.


Hjálparstarf kirkjunnar hefur opnað söfnunarreikninginn 0334-26-056200, kennitala 450670-0499. Þá er hægt að hringja í 907-2003 og leggja þannig til 2.500 krónur.

Mynd 1:
Þorpið Nuugaatsiaq varð gríðarlega illa úti. Fjórir fórust og mörg hús gjöreyðilögðust, m.a. skólinn, búðin og rafstöðin.


 
Mynd 2:
Börnin í Uummannaq þurftu að flýja til fjalla þegar hamfarirnar dundu yfir.