Keilir afhendir Brunavörnum Suðurnesja bangsa !

Keilir afhendir Brunavörnum Suðurnesja bangsa !


Þann 21 Nóvember afhenti Kiwanisklúbburinn Keiir nýjar birgðir af böngsum til Brunavarna Suðurnesja en bangsarnir eru ætlaðir til huggunar fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda.

Hefð hefur skapast fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til Brunavarna Suðurnesja.

Bangsinn hefur fengið nafnið Ævar en það er gert í nafni Ævars Guðmundssonar fyrrverandi Keilismanns sem lést árið 2008 en fjölskyldan hans styrkti verkefnið „Kiwanisklukkan“ á

hringtorginu á gatnamótum Hafnargötu og Aðalgötu og síðan þá hefur verið afhentur styrkur í nafni hans.

 

Eyrún Helga Ævarsdóttir  og Óliver Ævar sáu um að afhenda bangsana en Eyrún er dóttir Ævars heitins og Óliver Ævar er barnabarn hans. Á meðfylgjandi mynd eru Eyrún og Óliver ásamt Skúla Magnússyni forseta Keilis að afhenda vaktinni frá Brunavörnum Suðurnesja bangsana góðu.