Andlát

Andlát

  • 08.11.2007

Ólafur J.Einarsson fyrrverandi umdæmisstjóri lést  á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð 2.nóv. sl.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóv. Kl. 13.

Ólafur var einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins Heklu og var virkur félagi þar til hann missti heilsuna fyrir fáum árum.
Ólafur var umdæmisstjóri starfsárið 1972-1973. Hann gegndi starfi ritara í Norden umdæminu 1970-1971 og starfi svæðisstjóra Eddusvæðis 1971-1972.
Eiginkona Ólafs, Guðrún R. Sigurðardóttir var einnig mjög virk í starfi hreyfingarinnar og gegndi starfi formanns Sinawik
Kiwanisfélagar senda dóttur þeirra Sjöfn Ólafsdóttur og tengdasyni Eyjólfi Sigurðssyni samúðarkveðjur.