Svæðisstjóri vill minna á að skráning er í fullum gangi á sumarhátíðina í Flatey á Skjálfanda. Kiwanisfélagar um allt land velkomnir.
Ævintýraferð til Flateyjar 10. júní 2017
Drög að dagskrá
Laugardagurinn 10. júní
Brottför frá Húsavík kl.11 og komið er til Flateyjar um kl.12:30. Gengið upp að Krosshúsum og fengið sér léttan hádegisverð. Eftirfarandi tímasetningar eru viðmið.
13:30 – Söguganga um eyjuna, komið við á ýmsum merkilegum stöðum.
15:30 – Miðdegiskaffisopi og sögustund í góðra vina hópi
18:00 – Boðið verður upp á grillað lambakjöt með öllu tilheyrandi í Krosshúsum.
20:00 – Stórdansleikur í félagsheimilinu í Flatey sem stendur fram eftir kvöldi, glens og gaman.
21:30 – Áætluð heimferð fyrir þá sem ekki eru í gistingu
Sunnudagurinn 11. júní
13:00 – Áætluð heimferð fyrir þá sem voru í gistingu
Kostnaður við ferðina er 12,500 á mann, innifalið í verðinu eru milliferðir, léttur hádegisverður, miðdegiskaffið og veislan um kvöldið.
Skráning í ferðina fer fram hjá svæðisstjóra fyrir 1. júni á netfangið benkr@simnet.is en gistingu skal panta sér hjá Inga.
Hægt er að kaupa gistingu hjá Inga Sveinbjörns og Ingunni, hafa skal samband við þau í síma: 894-0872 fyrir frekari upplýsingar.
Á þessum árstíma skartar Flatey á Skjálfanda fjölbreyttu fuglalífi og einstakri náttúru.