Minning !

Minning !


Ágætu Kiwanisfélagar.
Mig langar aðeins að stinga niður penna,í minningu okkar ágætis félaga,Þórólfs Jónssonar, úr Kivanisklúbbnum Kaldbak Akureyri
en hann lést miðvikudaginn 1.febrúar, að heimili sínu Hánefsstöðum í Svarfaðardal.
Þórólfur var frá Ysta- Hvammi í Þingeyjarsveit,fæddur 4. maí 1941.
Þórólfur var gegnheill Kiwanismaður,góður félagi og skemmtilegur,
hagyrðingur af bestu gerð og liðtækur harmonikkuleikari.
Ég kallaði Þórólf oft Kiwanismann no.1, endalaust vakinn og sofinn
yfir velferð þeirra klúbba sem

hann starfaði í, og vildi Kiwanis allt.
Hugsaði í Kiwanis og dreymdi Emblur um nætur.
Við félagarnir í Kaldbak sjáum nú eftir góðum félaga.
Hans verður sárt saknað.
Kæri Þórólfur,hafðu þökk fyrir samfylgdina.
Við sendum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur

                         Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks.

                             Sigurjón Kristjánsson