Flugeldasýning Heklu hjá Hrafnistuheimilunum

Flugeldasýning Heklu hjá Hrafnistuheimilunum


Eins og undanfarin ár, eða áratugi, var Kiwanisklúbburinn Hekla með flugeldasýningu í samstarfi við Björgunarsveitina Ársæl hjá Hrafnistuheililunum í Hafnarfirði og við Laugárás í Reykjavík.   Þetta hefur verið árviss viðburður á Þrettándanum og verið vel tekið af vistmönnum þessara heimila.  Eins og ávallt áður, þá var

 sýningin vegleg og var mál manna að hún hefði sjaldan verið glæsilegri. 
 
Í lok sýningar færði Hekla björgunarsveitinni Ársæl myndarlegan styrk með þökkum fyrir veglega flugeldasýningu.