Dyngja hélt Bingó í Árskógum.

Dyngja hélt Bingó í Árskógum.


Kiwanisklúbburinn Dyngja hélt bingó í Árskógum, mánudagskvöldið 7. nóvember. Spilaðar voru 15 umferðir, um veglega vinninga frá velunnurum klúbbsins. Í hléi var kaffi og heimabakaðar "dyngjur" í boði. Ágóði bingósins rennur eins og oft áður til Vinasetursins. Við í Kiwanisklúbbnum Dyngju viljum


þakka gestum kvöldsins og vonumst til að sjá sem flesta aftur á næsta bingói í mars.